flugfréttir

Fyrsta lágfargjaldafélag Argentínu hefur starfsemi sína

- Flybondi mun mæta Norwegian í sumar og fleiri nýjum flugfélögum

5. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 20:16

Boeing 737-800 þota Flybondi

Svo virðist sem að fjör sé að færast í leikinn í lágfargjaldaflugi í Argentínu en nýtt lágfargjaldafélag þar í landi flaug á dögunum sitt fyrsta áætlunarflug.

Flybondi er fyrsta lágfargjaldafélagið í Argentínu en félagið stendur frammi fyrir mikilli samkeppni frá Norwegian Air Argentina, dótturfélags Norwegian, sem hefur boðað komu sína til landsins og mun fljúga fyrsta innanlandsflugið í júní í sumar.

Flybondi var formlega stofnað árið 2016 en þann 26. janúar sl. flaug félagið fyrsta flugið frá Córdoba til Puerto Iguazú.

Félagið byrjar með aðeins eina Boeing 737-800 þotu og var full vél í fyrsta fluginu en Flybondi mun einnig fljúga til 12 annarra áfangastaða í innanlandsflugi með bækistöðvar í Córdoba og í Buenos Aires.

Flybondi ætlar sér að fjölga þotunum úr einni Boeing 737-800 upp í 10 vélar

„Að ferðast með flugvél er ekki lengur forréttindi. Fleiri eiga núna eftir að fljúga í fyrsta sinn, fleiri flugmenn og flugfreyjur eiga einnig eftir að fá vinnu“, sagði Guillermo Dietrich, samgönguráðherra Argentínu.

Ekki lýst öllum á framtíð hins nýja flugfélags en formaður félags argentínskra atvinnuflugmanna segir að viðhaldsstöð Flybondi sé eingöngu lítið, ryðgað flugskýli sem sé í verra ásigkomulagi heldur en bílaverkstæði og þá bendir hann á að félagið sé aðeins með eina þotu sem mun valda mikilli röskun ef hún þarf að fara skyndilega í skoðun.

Þotan, sem er 13 ára gömul, var áður í flota tælenska flugfélagsins Nok Air og þar á undan í flota Ryanair en til stendur að flotinn verði á næstunni komin í 10 þotur. Þá er einnig stefnt á að hefja millilandaflug til Chile, Brasilíu og til Paraguay.

Kólumbíska flugfélagið Aviancia hefur einnig flogið innanlandsflug í Argentínu og þá hefur nýtt lágfargjaldafélag, sem nefnist Alas del Sur, boðað komu sína á markaðinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga