flugfréttir
Hækkun á flugfargjöldum yfirvofandi
- Þotueldsneytiverð hækkaði um tæp 8 prósent milli mánaða
Í janúar varð 7.9% hækkun á þotueldsneyti á heimsmarkaðsverði samanborið við desember fyrir áramót
Svo gæti farið að flugfélög í heiminum eigi eftir að hækka fargjöld á næstunni vegna hækkandi verðs á þotueldsneyti.
Verð á þotueldsneyti hefur verið að hækka að undanförnu frá því í júní en innkaup á eldsneyti
telur að meðaltali um 30% af þeim kostnaði sem fer í að reka flugfélag.
Í janúar varð 7.9% hækkun á þotueldsneyti á heimsmarkaðsverði samanborið við desember fyrir áramót
og 30% hækkun frá því í janúar í fyrra.
Alexandre de Juniac, framvæmdarstjóri Alþjóðasamtaka flugfélaganna (IATA), segir að meðalverð
á hverja tunnu sé í dag frá 6.000 til 7.000 krónur og sé það ásættanlegt verð og er talið að verðið eigi
eftir að haldast á þessu róli út þetta ár.
„Ef verðið fer mikið yfir 7.000 krónur á hverja tunnu þá mun það verða til þess að flugfélög fara að hækka
fargjöld“, segir Alexandre.
Nokkur flugfélög í Asíu segja að verð á eldsneyti hafi hækkað á sl. ári um 20 prósent sem verður til þess
að hagnaður félaganna dregst saman um nokkur prósent.
Michael ´O Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, telur að þessi hækkun eigi eftir að koma af stað hækkun
á fargjöldum en það verði þó ekki fyrr en árið 2019 sem fargjöld fara að hækka.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.