flugfréttir
United semur við háskóla í Denver um flugnámsleið
- Tryggja sér flugmenn til framtíðar
Boeing gerir ráð fyrir að þörf sé á 117.000 nýjum flugmönnum í Norður-Ameríku til ársins 2036
United Airlines hefur gert samning við flugnámsdeildina við Metropolitan State University háskólann í Denver um samstarf um námsleið fyrir nemendur skólans sem gefur þeim forgang í flugnámi á vegum flugfélagsins.
Með þessu vonast Untied Airlines til þess að draga úr þeim áhrifum sem yfirvofandi flugmannaskortur mun hafa
á félagið á næstu árum.
Þeir umsækjendur, sem koma til greina og verða teknir inn í námsleiðina, munu því sitja atvinnuflugmannsnám
á vegum United Airlines með forgangsrétt að flugmannstarfi innan þeirra svæðisflugfélaga sem fljúga fyrir félagið
á borð við CommutAir, ExpressJet og Air Wisconsin.
Námsleiðin var kynnt í gær en síðustu 15 mánuðir hafa farið í að þróa námsleiðina í samstarfi við háskólann
og verður opnað fyrir umsóknir í haust.
„Ávinningurinn fyrir okkur er að tryggja það að við höfum aðgang að góðum flugmönnum og fyrir ykkur
er ávinningurinn neimsleið sem veitir ykkur starf fyrir United Airllines“, sagði Michael McCasky, yfirmaður yfir þjálfunardeild félagsins
í Denver.
Flugnemar sem útskrifast í námsleiðinni eru ekki skildugir til þess að starfa fyrir United Airlines en vonast
er til þess að sem flestir taki við atvinnutilboði frá United Airlines ef þeim verður boðið starf að námi loknu.
Um 120 nemendur stunda nám við flugdeild háskólans í Denver og geta aðeins þeir
sótt um námsleiðina.
Erfiðlega hefur gengið að fá nýja nemendur til að hefja flugnám vestanhafs eftir að lágmarkskröfur um flugtíma
fyrir nýjan flugmann voru hækkaðar úr 250 flugtímum upp í 1.500 flugtíma sem er sami lágmarkstímafjöldi
og farið er fram á að flugstjóri hafi undir belti.
Kostnaðurinn við að safna þeim tímafjöldi nemur allt að 25 milljónum króna sem er upphæð sem fáir
ráða við og hefur sú breyting gert flugnám fráhrindandi valkost.
Með þessu vill Untied Airlines koma til móts við flugnema með því að greiða niður hluta af kostnaðinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.