flugfréttir
Vilja framleiða enn fleiri Airbus A320 þotur
- Airbus íhugar leiðir til að hækka framleiðsluhraðann
Airbus A320 þota í samsetningu í verksmiðjum Airbus í Mobile í Alabama
Airbus leitar nú leiða til þess að auka framleiðsluhraðann á Airbus A320 þotunni enn frekar.
„Velgengni A320 þotunnar gerir okkur tilneydda til þess að skoða með hvaða leiðum við getum framleitt
enn fleiri þotur“, segir Eric Schulz, nýr sölustjóri hjá Airbus sem hefur tekið við af John Leahy.
Airbus mun á næsta ári framleiða eina Airbus A320 þotu á 12 klukkustund fresti eða sextíu þotur á mánuði
en vélarnar eru framleiddar í Toulouse, Hamborg, Mobile í Alabama og í Tianjin í Kína.
Flestar af þeim Airbus A320 þotum, sem framleiddar eru í dag, eru afhentar til flugfélaga í Asíu
en talið er að Airbus muni afhenda um 10.000 Airbus A320 þotur til asískra flugfélaga á næstu 20 árum.
Schulz kom fram í fyrsta sinn í dag opinberlega sem sölustjóri Airbus á Singapore Air Show flughátíðinni sem hófst í morgun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.