flugfréttir

Flugprófanir með C919 langt á eftir áætlun

- Tilraunaþoturnar tvær hafa ekki flogið í nokkra mánuði

7. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:10

C919 tilraunarþota frá COMAC

Kínverski flugvélaframleiðandinn Comac hefur lent í töluverðum vandræðum með flugprófanir á nýju farþegaþotunni C919 og eru prófanirnar komnar langt á eftir áætlun.

Jómfrúarflugi C919 var fagnað í maí í fyrra og hafa tvær tilraunaþotur aðeins flogið um 20 flugtíma eftir það en nokkrir mánuðir eru síðan að vélarnar flugu seinast.

Önnur tilraunarþotan var kyrrsett þar sem þörf var á að gera uppfærslur á vélinni og þá er einn hluti vandamálsins að prófanirnar áttu að fara fram á bækistöð Comac á Pundong-flugvellinum í Shanghai sem er mjög þétt setinn af áætlunarflugi sem fer um völlinn og hefur verið erfitt að fá pláss til að framkvæmda prófanir vegna flugumferðar.

Ákveðið var að flytja flugprófanirnar til flugvallarins í borginni Xian í Kína og fjölgaði tilraunarflugferðunum við það en þó ekki nægilega mikið til að halda í við áætlunina.

Ljóst er að töluverð vinna við uppfærslur á þotunum er framundan áður en þær geta haldið prófunum áfram en sjaldgæft er að upp komi mikil röskun á flugprófunum í kjölfar jómfrúarflugsins.

Comac náði ekki að senda C919 þotuna á flugsýninguna í Shanghai sem gerir framleiðandanum erfiðlega fyrir að laða að nýja viðskiptavini á sama tíma og Boeing og Airbus eru á svæðinu með sínar þotur.

Comac berst nú fyrir því að koma C919 þotunni á alþjóðlegan markað og keppa við risa á borð við Boeing og Airbus sem hafa margra áratuga reynslu fram yfir Kínverja.

Framleiðandinn segir að Boeing og Airbus eigi auðveldara með að framkvæmda flugprófanir þar sem þeir hafa sína eigin flugvelli til þess að framkvæma prófanir auk þess sem þeir búa yfir meiri reynslu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga