flugfréttir
Íhuga að framleiða herútgáfu af Airbus A320neo
Airbus A321 þota Airbus
Airbus hefur lýst því yfir að framleiðandinn sé að skoða möguleika á að framleiða herflugvél sem byggir á Airbus A320neo og A321neo farþegaþotunum.
Fernando Alosno, yfirmaður hjá Airbus Defence & Space, segir að herútgáfa af Airbus A320neo
gæti þjónað sem sérhæfð eftirlitsflugvél, könnunarflugvél, gæsluflugvél og VIP flugvél fyrir
herdeildir.
„Við búum yfir þeirri þekkingu sem þarf til að breyta Airbus A330 yfir í A330 MRTT (multirole
tanker transport)“, segir Alonso sem bendir á að ný kynslóð af hreyflum væri hagnýtur
kostur til að innleiða í herflugvél af þessari gerð.
Airbus á nú þegar í viðræðum við herdeildir hjá nokkur löndum á borð við herinn
í Indónesíu, á Nýja-Sjálandi, Frakklandi, Þýskalandi og franska flugherinn um þennan möguleika.
Aðeins tæki um 6 til 8 mánuði að útfæra Airbus A320neo sem herflugvél eftir að búið
væri að ljúka við áætlunargerð um breytinguna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.