flugfréttir
Hönnun á Boeing 737 MAX 10 formlega lokið
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX 10
Boeing hefur tilkynnt að búið sé að ljúka við hönnun á Boeing 737 MAX 10 þotunni sem verður lengsta 737 MAX þotan.
Þetta þýðir að aðalhönnun vélarinnar er formlega lokið og sé því búið að ákveða útlit, skipulag
og afköst vélarinnar og mun ítarleg hönnun taka við næst áður en framleiðslan hefst.
Vélin, sem verður 1,7 metrum lengri en Boeing 737 MAX 9, mun taka allt að 230 farþega í sæti.
737 MAX 10 er ætlað að vera svar Boeing við Airbus A321LR þotunni en hún mun hafa flugdrægi
upp á 5.960 kílómetra sem er aðeins 80% af því drægi sem A321LR þotan mun geta flogið.
Í dag hafa 18 viðskiptavinir pantað 416 eintök af Boeing 737 MAX 10 en meðal þeirra flugfélaga
sem hafa pantað vélina eru Copa Airlines, Enter Air, flydubai, Hainan Airlines, Lion Air,
Ruili Airlines, SunExpress og United Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.