flugfréttir
20 flugvélar farnar úr flota Etihad á einum mánuði
Boeing 777 þota Etihad Airways á flugvellinum í Abu Dhabi
Etihad Airways hefur tekið 20 þotur úr flota sínum á sl. 30 dögum sem ýmist hefur verið seldar eða ferjaðar í geymslu.
Af þessum vélum eru meðal annars allar fimm Boeing 777-200LR þoturnar sem félagið
keypti á sínum tíma frá Air India og notaði í áætlunarflugi til Bandaríkjanna en félagið
hefur verið að minnka umsvifin í fluginu til Norður-Ameríku.
Þann 29. janúar seldi Etihad Airways tíu Airbus A340 þotur til fyrirtækisins European
Aviation sem keypti sjö breiðþotur frá félaginu af gerðinni Airbus A340-600 og þrjár
A340-500 þotur.
Þá var greint frá því þann 22. janúar að Etihad Airways hefði tekið allar
Airbus A330-200F fraktþoturnar út flota dótturfélagins Etihad Cargo en félagið hefur einnig
fimm Boeing 777F þotur í flotanum.
Etihad Airways var rekið með tapi árið 2016 sem nam 190 milljörðum króna en það var í fyrsta sinn frá árinu 2011 sem félagið var rekið með tapi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.