flugfréttir
Guli liturinn mun ekki alveg hverfa hjá Lufthansa
Guli liturinn mun halda sér áfram á ýmsum stöðum þótt hann hverfi af stéli flugvélanna
Það hefur ekki farið framhjá mörgum að Lufthansa hefur kynnt nýja liti til sögunnar fyrir flugvélarnar í flotanum og eru margir flugvélaáhugamenn og aðdáendur Lufthansa sem hafa sagt að þeir eigi eftir að sjá eftir gula litnum.
Þrátt fyrir að guli liturinn muni hverfa er varðar nýju litina á flugvélunum þá
mun Lufthansa halda áfram að nota gula litinn í mörgu öðru er viðkemur flugrekstrinum
á borð við merkingar á flugvöllum og á búningum.
Lufthansa kynnti nýju litina með Boeing 747-8 júmbó-þotu félagsins sem var ein sú
fyrsta sem var máluð í nýju litunum auk Airbus A321 þotu sem leit dagsins ljós
í nýja útlitinu sl. miðvikudag.
Gula litinn verður enn hægt að finna í merkinum á búningum hjá áhöfnum Lufthansa
Lufthansa segir að dökkbláa merkið, sem verður núna leiðandi litur í markaðsímynd
félagsins, sé tignarlegri og undirstrikar nýja útlitið áreiðanleika félagsins, traust og virðingu.
Skilti á flugvöllum, merkingar og fatnaður áhafna, auk annarra hluta í kringum
reksturinn sem tengist Lufthansa, mun áfram skarta gula litnum að einhverju leyti þótt hann muni hverfa af stélinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.