flugfréttir
Snjór á flugbrautum skemmdi hreyfla á 19 þotum hjá Aeroflot
- Illa gekk að ryðja brautirnar og halda þeim auðum í fannferginu
Farþegaþotur Aeroflot á Sheremetyevo-flugvellinum í Moskvu
Nítján farþegaþotur hjá Aeroflot af gerðinni Airbus A320 urðu fyrir skemmdum síðustu helgi í kjölfar mikillar snjókomu sem gekk yfir í Moskvu.
Vélarnar urðu allar fyrir tjóni á hreyflablöðum sem skemmdust eftir að krap, snjór og klaki fór inn í hreyflanna
af flugbrautunum en fram kemur að ekki hafi tekist að ryðja brautirnar nægilega vel á meðan snjó kyngdi
niður.
Skemmdirnar komu allar fram eftir lendingu og er talið að snjór og klakkastykki hafi sogast af brautinni inn í hreyflanna
við „reverse thrust“ þegar vélarnar voru að bremsa eftir lendingu sem hafi skemmt hreyflablöðin.
Ekki er um alvarlegar skemmdir að ræða og mun það taka nokkra daga að gera við hreyflana
en fram kemur að atvik sem þessi komi reglulega fyrir í Rússlandi sem oftast má rekja til lélegra vinnubragða
við ruðning flugbrauta í snjókomu.
Snjókoman síðustu helgi í Moskvu var sú mesta sem elstu menn muna og var fannfergið það mesta
frá því mælingar hófust.
Alls þurfti að fella niður 850 flugferðir á flugvöllunum í Moskvu vegna snjókomunnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.