flugfréttir
Philippine Airlines orðið fjögurra stjörnu flugfélag
Philippine Airlines er fyrsta flugfélagið frá Filippseyjum til að fá fjórar stjörnur frá Skytrax
Philippine Airlines er orðið fjögurra stjörnu flugfélag að mati fyrirtækisins Skytrax sem metur flugfélög eftir þjónustu og gæðum.
Þetta er í fyrsta sinn í flugsögu Filippseyja sem flugfélag í landinu fær 4 stjörnur
og er Philippine Airlines því komið í hóp þeirra 42 flugfélaga í heiminum sem teljast sem fjögurra
stjörnu flugfélög.
Edward Plaisted, framkvæmdarstjóri Skytrax, segir að þetta endurspegli þær miklu umbætur
sem hafa átt sér stað í rekstri Philippine Airlines síðustu tvö árin.
Flugfélagið hefur m.a. tekið í notkun nýju Airbus A350 þotuna og þá var gerð úttekt á
afþreyingarefni um borð, þjónustu við farþega ásamt öðrum þáttum sem eiga sinn hlut í að félagið
fékk fjórðu stjörnuna.
Philippine Airlines er eitt af elstu flugfélögum í heimi, stofnað árið 1935, og er félagið elsta flugfélagið
í Asíu sem enn flýgur undir sama nafni.
Félagið hefur 65 flugvélar í flota sínum sem fljúga til yfir 70 áfangastaða í Asíu, Norður-Ameríku og í
Evrópu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.