flugfréttir
Sprengja frá seinna stríði finnnst nálægt London City
- Flugvellinum lokað
Lögregluþjónar standa vörð nálægt flugvellinum
London City flugvellinum hefur verið lokað í kjölfar þess að sprengja frá seinni heimstyrjöldinni fannst í jarðveginum við árbakka Thames-árinnar nálægt flugbraut vallarins.
Öllu flugi í dag um London City hefur verið aflýst og í NOTAM-upplýsingum kemur
fram að vegna röskunar á starfsemi þá sé völlurinn ekki nothæfur og verði flugmenn
að ganga úr skugga um að flugbrautin sé opin áður en þeir taka á loft.
Lokun vallarins mun hafa áhrif á um 16 þúsund farþega sem áttu bókað flug til eða frá vellinum en sprengjan fannst klukkan 22:00 í gærkvöldi.
Flugvélar British Airways kyrrsettar á London City vegna sprengjufundarins
Sprengjan fannst nálægt King George V bryggjuna sem liggur nálægt 27 brautarendanum
á flugvellinum og er búið að virkja afmarkað sprengjusvæði af öryggisástæðum.
Robert Sinclair, framkvæmdarstjóri London City flugvallarins, segir að unnið
sé í samstarfi við lögregluyfirvöld og breska sjóherinn að fjarlægja sprengjuna.
Austurhluti Lundúna varð fyrir miklum sprengjuárásum í seinni heimstyrjöldinni
og hefur flugvellinum áður verið lokað vegna sprengjufunds nálægt vellinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.