flugfréttir

Bilun ekki talin orsök flugslyssins í Rússlandi

- Rannsaka hvort eitthvað saknæmt hafi orsakað flugslysið

12. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:11

Brak á slystað þar sem astæður hafa verið erfiðar

Ekki er enn vitað orsakaði flugslys sem átti sér stað í Rússlandi í gær er farþegaþota af gerðinni Antonov An-148 frá flugfélaginu Saratov Airlines fórst skömmu eftir flugtak frá Domodedovo-flugvellinum í Moskvu.

Fram kemur að ekki sé vitað til þess að nein bilun hafi átt sér stað en vélin hafði sl. daga flogið nokkrar flugferðir milli Moskvu og borgarinnar Orsk og höfðu flugvirkjar skoðað vélina í hvert skipti er hún kom til baka.

Tveir flugvirkjar á vegum félagsins voru um borð í síðustu flugferð vélarinnar áður en hún fórst en einnig kemur fram að vélin hafi gengist undir C-skoðun í janúar.

Talið er að vélin hafi hrapað með nefið til jarðar en vélin skildi eftir sig eins og hálfs meters djúpan gíg ofan í jörðinni sem er um 7 metrar í þvermál.

Bent hefur verið á að mögulegar orsakir slyssins gætu hafa verið sæmt veður og mistök meðal flugmanna.

Báðir flugritarnir hafa fundist og er vonast til að upplýsingar úr þeim geti varpað ljós á slysið

Báðir svörtu kassar vélarinnar eru fundnir en sá síðari fannst í dag en sá fyrri fannst í gær þegar verið var að leita í braki vélarinnar sem dreifðist yfir 30 hektara svæði sem er álíka stórt og Bakkarnir í Breiðholti.

Brak úr vélinn dreifðist yfir mjög stórt svæði

Saratov Airlines hefur kyrrsett aðrar Antonov An-148 þotur í flotanum en þessa flugvélategund er einnig að finna í flota norður-kóreska flugfélagsins Air Koryo, kúbverska flugfélagsins Cubana auk rússnesku flugfélaganna Angara Airlines og Rossiya Airlines.

Farið hefur verið að stað með sakamálarannsókn þar sem ekki er útilokað að flugslysið hafi átt sér stað með saknæmum hætti og þá hafa starfsmenn Saratov Airlines og starfsfólk á Domodedovo-flugvellinum, sem afgreiddi vélina, verið yfirheyrt.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga