flugfréttir

Airbus gerir hlé á afhendingum á nýjum Airbus A320neo þotum

- EASA sendir út tilmæli í kjölfar atvika með PW1100G hreyfilinn

12. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 20:01

PW1100G hreyfill á Airbus A320neo þotu

Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) hefur sent út tilskipun þar sem nokkur flugfélög hafa tilkynnt um vandamál með PW1100G hreyfilinn þar sem upp komu tilvik þar sem þurfti að slökkva á hreyflum á flugi og einnig atvik þar sem hætt var við flugtak vegna vandamála með hreyfilinn.

Indverska flugfélagið IndiGo hefur kyrrsett þrjár Airbus A320neo þotur vegna vandans l en í tilmælum frá EASA kemur fram að þar sem áhætta á hreyflabilun sé mest er vélarnar eru á flugi sé mikil hætta á því að bilun geti komið upp í báðum hreyflunum.

Airbus vinnur nú að því að komast að rót vandans í samstarfi við hreyflaframleiðandann Pratt & Whitney en talið er að vandamálið hrjái aðeins þá PW1100G hreyfla sem hafa verið framleiddir nýlega og eru því um ellefu Airbus A320neo og A321neo þotur sem hafa verið kyrrsettar með þá hreyfla sem smíðaðir voru á tilteknu tímabili.

Tilmælin eiga aðeins við þær Airbus A320neo þotur sem koma með PW1100G hreyfilinn en þær vélar, sem hafa LEAP-1A hreyfillinn frá CFM International, geta haldið áfram að fljúga.

Nokkur mismunandi vandamál hafa komið upp með PW1100G hreyfillinn en árið 2016 var vandamál í hugbúnaði í hreyflinum sem skapaði hættu á ofhitnun sem krafðist lengri tíma í að ræsa hreyflanna en slíkt lengdi viðsnúningstíma fyrir heimflug.

Það vandamál varð til þess að Qatar Airways vildi ekki taka við fyrstu Airbus A320neo þotunum fyrst allra flugfélaga og varð Lufthansa því fyrsta flugfélag í heimi til þess að fljúga Airbus A320neo þotunni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga