flugfréttir

Boeing 797 verður kynnt til leiks á Farnborough í sumar

- Talið að nýja farþegaþotan komi með 2 x 3 x 2 sætaskipan

13. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:24

Orðrómur er um að Boeing 797 muni koma með sætaskipin líkt og sést á þessari mynd frá níunda áratugnum

Sagt er að Boeing ætli að kynna Boeing 797 formlega til leiks og ýta verkefninu úr vör á Farnborough-flugsýningunni sem fram fer í júlí í sumar.

Boeing hefur ekki gefið mikið upp um áætlanir sýnar varðandi Boeing 797 og þá hefur framleiðandinn ekki rætt um nýju farþegaþotuna undir nafninu „797“ en vélin hefur hingað til verið nefnd „New Midsize Aircraft“.

Samkvæmt ástralska vefnum The West Australian kemur fram að Boeing 797 muni koma með tveimur göngum og verður sætaskipunin 2 x 3 x 2 á almennu farrými sem þýðir að að tvö sæti verða saman við gluggana beggja megin og þrjú sæti í miðjunni með tveimur göngum til hliðanna.

Á Premium farrými er gert ráð fyrir 1 x 2 x 2 sætaskipun og á fyrsta farrými verður 1 x 1 x 1 sætaskipan.

Tölvugerð mynd af Boeing 797

Þessi útfærsla á sætum (2 x 3 x 2) er ekki ný af nálinni því bæði Boeing og McDonnell Douglas komu fram með þessa hugmynd á níunda áratugnum en flugfélög höfðu þá lítinn áhuga á þessu fyrirkomulagi.

The West Australian segir að með Boeing 797 mun loksins koma farþegaþota á markaðinn sem farþegar eiga eftir að elska þar sem sætaskipunin mun bjóða upp á mikil þægindi um borð bæði fyrir farþega og áhöfn.

Boeing segir að það sé um 30.000 mismunandi tengingar milli tveggja borga í heiminum sem henta fyrir þessa nýju farþegaþotu og er talið að hún muni koma sér sérstaklega vel í flugi milli Bandaríkjanna og Evrópu og milli Ástralíu og Asíu.

Gert er ráð fyrir að Boeing 797 muni fljúga sitt fyrsta flug árið 2024 og er vonast til að afhendingar geti hafist árið 2025.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga