flugfréttir

Embry-Riddle og Singapore Airlines í samstarf um flugnám

13. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:53

Fyrstu nemendurnir frá Singapore Airlines munu hefja nám í Flight Minor verkefninu í júní

Embry-Riddle flugskólinn í Bandaríkjunum hefur gert samning við Singapore Airlines um flugnámsleið en með því ætlar flugfélagið að tryggja sér að hafa næga flugmenn tiltæka til að koma til móts við aukin umsvif á næstu árum.

Flugnámsleiðin, sem kallast Flight Minor, er aðgengileg fyrir þá nemendur sem stunda flugtengt nám við útibú skólans í Singapore, Embry-Riddle Asia, og geta þeir á námsferlinum haldið til höfuðstöðva skólans í Flórída og lokið við námið með styrk frá Singapore Airlines.

Flugnemar munu í Flórída ljúka öllum verklegum tímum með öllum áritunum, þar sem ekki er aðstaða til slíks nám við skólann í Singapore, og klárað námið svo aftur heima með forgang að starfi sem flugmenn hjá Singapore Airlines.

„Þetta er „win win“ fyrir alla. Nemendur okkar munu fá einstaka þjálfun í tveimur flugskólum og góðan undirbúning fyrir flugiðnaðinn og á meðan getum við uppfyllt þörfina fyrir reynda flugmenn“, segir John Watret, stjórnarmeðlimur hjá Embry-Riddle Asia.

Boeing gerir ráð fyrir að þörf sé fyrir 235.000 nýja flugmenn á Asíu-Kyrrahafssvæðinu til ársins 2039 en Singapore Airlines er 13. stærsta flugfélag Asíu með 110 þotur í flota sínum og á félagið von á 118 til viðbótar á næstu árum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga