flugfréttir

Atlantic Airways pantar Airbus A320neo

- Verður stærsta þotan í flota flugfélagsins færeyska

13. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:23

Tölvugerð mynd af Airbus A320neo þotu í litum Atlantic Airways

Atlantic Airways mun fá Airbus A320neo þotu í flotann sinn á næsta ári en félagið hefur gert samning við flugvélaleiguna Air Lease Corporation um leigu á einni slíkri þotu.

Vélin verður afhent til flugfélagsins færeyska í mars árið 2019 og verður Atlantic Airways því nýr viðskiptavinur hjá Air Lease sem er eins stærsta flugvélaleiga í heimi.

„Þessi viðbót mun styrkja áætlanir okkar sem er að tengja Færeyjar við umheiminn og bjóða upp á hagstæð fargjöld fyrir ferðamenn og Færeyinga“, segir Jóhanna á Bergi, framkvæmdarstjóri Atlantic Airways.

SAS hefur hingað til veitt Atlantic Airways samkeppni í fluginu milli Færeyja og Kaupmannahafnar með Airbus A320neo þotu sem er hagkvæmari og sparneytnari flugkostur en sú Airbus A320 þota sem Atlantic Airways hefur í dag en eftir ár mun færeyska félagið ná SAS í hagkvæmninni á þeirri flugleið.

Airbus A320neo þotan mun hafa sæti fyrir 174 farþega eða sex fleiri farþega en sú Airbus A320 þota sem Atlantic Airways hefur í dag sem tekur 168 farþega en þá hefur félagið einnig tvær Airbus A319 þotur sem taka 144 farþega.

Atlantic Airways hefur Airbus-vætt flugflota félagsins sl. sex ár en félagið fékk árið 2012 fyrstu Airbus-þotuna afhenta sem var af gerðinni Airbus A319 og leystu þær af hólmi Avro RJ85 þoturnar fyrir nokkrum árum síðan.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga