flugfréttir
Delta hefur áhuga á Boeing 797
- Sjá fyrir sér að nýja þotan gæti leyst af hólmi Boeing 757 og 767
Delta Air Lines segir að til greina komi að panta Boeing 797 þotuna
Delta Air Lines hefur lýst því yfir að flugfélagið hafi áhuga á að panta Boeing 797 þotuna sem fyrirhugað er að fara í framleiðslu á næstu árum.
„Miðað við það sem við höfum heyrt frá Boeing um „nýja meðalstóru þotuna“ þá teljum við þetta mjög áhugaverðan kost
og gæti þessi vél verið langtímalausnin til að leysa af hólmi Boeing 757 og Boeing 767“, segir í tilkynningu frá Delta en fram
kemur að flugfélagið bandaríska taki virkan þátt í hugmyndavinnunni.
Randy Tinseth, varaforstjóri yfir farþegaþotudeild Boeing, segir að verið sé að vinna að hugmyndaþróun og sé beðið
eftir því að fá grænt ljós frá stjórn Boeing til að starta 797 verkefninu.
Delta Air Lines hefur 111 þotur í flotanum af gerðinni Boeing 757-200, sextán Boeing 757-300 og nítíu breiðþotur
af gerðinni Boeing 767 en meðalaldur vélanna er frá 15 árum upp í 22 ár.
Delta hefur nú þegar skipt einhverjum Boeing 757 þotum út fyrir Airbus A321 og Boeing 737-900ER þotum en þrátt
fyrir það þá býður hvorug þessara véla upp á langflugsmöguleika yfir Atlantshafið að sögn félagsins.
Delta Air Lines hefur hvorki lagt inn pöntun í Boeing 737 MAX né Dreamliner en hinsvegar pantaði félagið
100 Airbus A321neo þotur í desember í fyrra og árið 2014 voru pantaðar fimmtíu A330-900neo og A350-900 þotur
frá Airbus.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.