flugfréttir

Sögusagnir um að þota hafi lent á hraðbraut í sandstormi

- Yfirvöld í Sádí-Arabíu reyna að leiðrétta orðróm á samfélagsmiðlum

14. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:02

Skjáskot af myndbandi sem tekið var út flugvallarbíl

Yfirvöld í Sádí-Arabíu hafa sl. daga reynt að leiðrétta misskilning og orðróm sem farið hefur á kreik um að farþegaþota hafi lent á hraðbraut í borginni Jeddah í miklum sandstormi.

Myndbandi, sem sýnir farþegaþotu í miklum sandstormi, var dreift á samfélagsmiðla á dögunum og hafa margir talið að vélin hafi lent á Jeddah-Makkah hraðbrautinni innan um bílaumferð.

Yfirmaður flugmálayfirvalda í Sádí-Arabíu segir að þotan, sem var frá Malaysian Airlines, hafi lent á King Abdulaziz flugvellinum í Jeddah í september árið 2015 og hafi myndbandið verið tekið innan úr flugvallarbíl sem var á svæðinu af öryggisástæðum ásamt fleiri bílum á vegum flugvallarins.

Mikill sandstormur geisaði í nágrenni Jeddah fyrr í vikunni en myndbandið má meðal annars finna á Youtube og var það sett inn á vefinn þann 12. september árið 2015 sem kemur heim og saman við yfirlýsingu frá stjórnvöldum í Sádí-Arabíu.

Málið skaut einnig upp kollinum í september sama ár þegar sama myndband fór á kreik á samfélagsmiðlum og þurfti Malaysian Airlines þá að leiðrétta misskilning um að farþegaþota frá þeim hefði lent á hraðbraut.

„Allar flugvélarnar okkar hafa lent heildar á höldnu í Jeddah. Vegna sandstorms þá báðu flugumferðarstjórar flugmennina um að bíða á akbraut eftir frekar fyrirmælum“, kom fram í tilkynningu frá Malaysia Airlines árið 2015.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga