flugfréttir

Airbus býður eftir að sjá áhrif CSeries á pantanir í A319neo

15. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:01

Airbus A319neo flaug sitt fyrsta flug í maí í fyrra en engar þotur hafa enn verið afhentar

Airbus segir að enn sé áhugi fyrir Airbus A319neo þotunni þrátt fyrir að pöntunum í vélina hafi farið fækkandi.

Flugvélaframleiðandinn evrópski segir að verið sé að meta hvort að þátttaka Airbus í CSeries-framleiðslunni hjá Bombardier eigi eftir að hafa áhrif á pantanir í Airbus A319neo þar sem sú vél er í sama stærðarflokki og CS100 og CS300 þoturnar.

Fáar pantanir hafa verið gerðar í Airbus A319neo, sem er minnsta neo-þotan í A320neo fjölskyldunni, en upphaflega var Airbus komið með pantanir í 51 þotu en Frontier Airlines hætti í fyrra við pantanir í allar þær 18 þotur sem félagið pantaði.

Í dag stendur fjöldi pantanna í 30 þotum en kólumbíska flugfélagið Avianca pantaði tuttugu vélar árið 2012 og þá hefur óþekktur viðskiptavinur pantað 10 Airbus A319neo þotur.

Tom Enders, framkvæmdarstjóri Airbus, segir að Airbus A319neo sé „enn að seljast“ þar sem hún hentar vel fyrir vissan hóp viðskiptavina en tekur fram að verið sé að bíða eftir því hvort að aðrir viðskiptavinir eigi eftir að panta vélina eða kjósa frekar CSeries frá Bombardier.

„CSeries er mjög samkeppnishæf flugvél. Annars hefðum við ekki tekið yfir því verkefni frá Bombardier. Við eigum eftir að sjá hvernig þessar tvær þotur eiga eftir að standa sig með tilliti til pantanna“, segir Enders.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga