flugfréttir

Yfir 60 látnir í flugslysi í Íran

- ATR 72-200 flugvél fórst í fjalllendi

18. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:42

ATR 72-200 flugvél frá Iran Aseman Airlines

Talið er að enginn hafi komist lífs af í flugslysi í Íran í morgun er farþegaflugvél af gerðinni ATR 72-200 brotlenti í fjallendi í innanlandsflugi í landinu.

Flugvélin, sem er frá Iran Aseman Airlines, var í áætlunarflugi frá Teheran til borgarinnar Yasuj þegar vélin hvarf af ratsjá yfir einum stærsta fjallgarði landsins en flak vélarinnar fannst skömmu síðar í fjallshlíð í 12.000 feta hæð yfir sjávarmáli í Dena-fjöllum nálægt bænum Semirom.

Seinasta ratsjársamband við vélina var klukkan 5:52 í nótt að íslenskum tíma þegar vélin var yfir fjölstefnuvitanum Efsahan VOR en þá báðu flugmenn vélarinnar um leyfi til þess að lækka sig úr 21.000 fetum niður í 17.000 fet en vélin hvarf af Flightradar24.com þremur mínútum síðar.

Um borð í vélinni voru sextíu farþegar og sex manna áhöfn; tveir flugmenn, tveir flugliðar og tveir öryggisverðir en samkvæmt írönskum fjölmiðlum þá komst enginn lífs af.

Erfiðlega hefur gengið fyrir björgunarsveitir að komast að flaki vélarinnar vegna þoku og snjókomu og hafa þyrlur því ekki getað athafnað sig við slysstaðinn. Björgunarleiðangur á er nú á leiðinni á staðinn fótgangandi

Dena-fjöllin er hluti af Zagros-fjöllunum í Íran sem er stærsti fjallgarður landsins þar sem yfir 40 tindar ná yfir 4.000 metra hæð yfir sjávarmáli.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga