flugfréttir
Boeing 737 MAX 9 fær flughæfnisvottun
- Fyrsta eintakið verður afhent til Lion Air Group
Fyrsta eintakið af Boeing 737 MAX 9 verður á næstunni afhent til Lion Air Group
Boeing 737 MAX 9 hefur fengið flughæfnisvottun frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA).
Með því geta afhendingar á vélinni hafist en það er Lion Air í Indónesíu sem mun fá fyrsta eintakið afhent af
Boeing 737 MAX 9 þotunni.
Boeing 737 MAX 9 flaug sitt fyrsta flug fyrir 11 mánuðum síðan en tíu flugfélög hafa til samans pantað 71 eintak af Boeing 737 MAX 9 og þar á meðal Icelandair.
Boeing 737 MAX þoturnar hafa verið í umferð í 9 mánuði en fyrsta eintakið var afhent til Malindo AIr
í maí 2017 og hefur Boeing í dag afhent áttatíu 737 MAX þotur til sautján flugfélaga sem allar eru
af gerðinni Boeing 737 MAX 8.
Á næsta ári verður fyrsta Boeing 737 MAX 7 þotan afhent og þá mun einnig hefjast framleiðsla
á fyrstu Boeing 737 MAX 10 þotunni sem kemur á markaðinn árið 2020.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.