flugfréttir
Sichuan Airlines pantar tíu A350-900 þotur frá Airbus
Sichuan Airlines á nú þegar von á fyrstu Airbus A350-900 þotunni sem kemur í sérstöku litaþema með Panda-bangsa
Airbus hefur fengið pöntun í tíu Airbus A350-900 þotur frá kínverska flugfélaginu Sichuan Airlines.
Um samkomulag er að ræða sem bíður þess að fá samþykkis frá kínverskum stjórnvöldum
en verðmæti pöntunarinnar eru um 310 milljarðar króna.
Á meðan þá bíður Sichuan Airlines eftir því að fá fyrstu A350-900 þotuna afhenta frá AerCap flugvélaleigunni
og aðra frá Air Lease en félagið pantaði fjórtán A350-900 þotur frá flugvélaleigunum í september árið 2016.
Sichuan Airlines er 8. stærsta flugfélag Kína en félagið hefur 132 þotur í flotanum sem allar eru frá Airbus.
Auk innanlandsflugs í Kína þá flýgur félagið einnig til Nýja-Sjálands, Tælands, Víetnam, Dubai, Nepal,
Maldívíeyja, Ástralíu, Japans, Tékklands, Rússlands, Suður-Kóreu, Singapore, Taívans, Kanada og til Los Angeles.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.