flugfréttir
Þotu frá WOW air snúið til Goose Bay
- Veikindi um borð á leið til Newark
TF-GMA á flugvellinum í Goose Bay í kvöld / Ljósmynd: Jacob Barker
Farþegaþota frá WOW air þurfti í kvöld að lenda í Goose Bay á Nýfundnalandi vegna veikinda um borð er vélin var á leið til Newark-flugvallarins í Bandaríkjunum.
Vélin, sem er af gerðinni Airbus A321 (TF-GMA), fór í loftið frá Keflavíkurflugvelli klukkan 15:30
í dag en þegar vélin var yfir Grænlandi sendi vélin frá sér ratsjármerkið 7700 sem táknar neyðarástand
um borð.
Vélin lenti á flugvellinum í Goose Bay klukkan 19:06 í kvöld að íslenskum tíma og var sjúkrabíll
sendur að vélinni.
Vélin hafði um 50 mínútna viðdvöl og fór aftur í loftið klukkan 19:55 og er áætlaður komutími
til Newark klukkan 22:35 í kvöld.
TF-GMA á Flightradar24.com
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.