flugfréttir

Isavia úthlutar styrkjum úr samfélagssjóði

- Þrettán verkefni fengu úthlutað úr sjóðnum

21. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:51

Isavia styrkir góð málefni á hverju ári eftir afmarkaðri stefnu sem er í samræmi við samþykkt stjórnar félagsins

Isavia hefur úthlutað styrkjum til 13 verkefna úr samfélagssjóði sínum en verkefnin eru af fjölbreyttum toga.

Við val á styrkþegum er áhersla er lögð á umhverfismál, mannúðarmál, forvarnir, flugtengd málefni, listir, menningu og menntamál. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári og ætíð berst nokkuð mikill fjöldi umsókna. Verkefnin sem fengu styrk að þessu sinni eru:



AOPA á Íslandi (Félag flugmanna og flugvélaeigenda á Íslandi) fékk styrk vegna þátttöku í heimsþingi IAOPA. AOPA á Íslandi hefur 150 virka félaga sem nota flugþjónustu og flugvelli sem Isavia rekur. Félagið rekur umfangsmikið félags- og fræðslustarf sem stuðlar að auknu flugöryggi og öryggisvitund, ekki bara fyrir félaga heldur alla flugmenn.

Birta landssamtök fengu styrk til ýmissa verkefna. Birta eru landssamtök fólks sem misst hefur börn sín skyndilega. Tilgangur og markmið eru að standa fyrir fræðslu og ýmsum viðburðum á landsvísu. Samtökin standa einnig fyrir hvíldardögum fyrir foreldra, forráðamenn og fjölskyldur þeirra.

Ferðaklúbburinn 4x4 fékk styrk vegna endurnýjunar á VHF endurvarpskerfi félagsins sem er það stærsta sinnar tegundar á Íslandi og er notað af ferðafólki, björgunarsveitum og viðbragðsaðilum.

Félag heyrnarlausra fékk styrk til að koma af stað greiningarvinnu um geðheilbrigði heyrnarlausra í samstarfi við Háskólann í Reykjavík.

Fjölskylduhjálp Íslands fékk styrk til matarúthlutana til barnafjölskyldna í Reykjanesbæ.

Hekluskógar fengu styrk fyrir verkefni um að endurheimta birkiskóla á svæði Hekluskóga í Þjórsárdal.

Íþróttabandalag Reykjanesbæjar fékk styrk til að efla barna- og unglingastarf í samfélaginu. Íþróttabandalag Reykjanesbæjar eru regnhlífarsamtök níu íþróttafélaga í Reykjanesbæ.

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fékk styrk vegna verkefnis þar sem nemendur í 3. bekk um allt land eru heimsóttir og fræddir um eldvarnir og gefinn kostur á að taka þátt í Eldvarnargetrauninni.

Listahátíð í Reykjavík fékk styrk til að setja upp leiksýningu í miðborginni og víðar. Um 200 manns taka þátt, flestir almennir borgarar. Hugmyndin er að láta líta út fyrir að tíminn hafi fallið saman og á götum borgarinnar 2018 verði einstaklingar frá árinu 1918.

Lítil hjörtu, að beiðni B-vaktar vopnaleitar á Keflavíkurflugvelli, fá styrk. Lítil hjörtu eru góðgerðafélag sem aðstoðar fjölskyldur sem eru með lítið á milli handanna. Starfsfólk B-vaktar vopnaleitar ætlar að styrkja félagið og óskaði eftir mótframlagi frá Isavia.

Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi fékk styrk til framleiðslu rafræns efnis sem inniheldur almenna fræðslu og gagnlegar upplýsingar fyrir þolendur langvarandi ofbeldis.

Samgönguminjasafnið í Skagafirði fékk styrk til að setja upp upplýsingar um sögu flugumferðar á Íslandi frá upphafi til dagsins í dag.

Samtök umgengnisforeldra fengu styrk fyrir verkefni sem miðar að hagsmunagæslu og réttindabaráttu fyrir umgengnisforeldra. Félagið beitir sér fyrir bættri stöðu þeirra gagnvart velferðarkerfinu, almannaskráningu og hagskýrslugerð.

Um styrktarsjóð Isavia

Isavia styrkir góð málefni á hverju ári eftir afmarkaðri stefnu sem er í samræmi við samþykkt stjórnar félagsins. Styrkirnir skiptast í þessa þrjá flokka: Styrktarsjóður Isavia hjá Landsbjörgu veitir styrki til björgunarsveita um allt land.

Sveitirnar eru styrktar til kaupa á hópslysabúnaði og er sérstök áhersla lögð á björgunarsveitir nálægt flugvöllum og fjölförnum ferðamannastöðum. Styrktarsjóðir Isavia hjá HÍ og HR veita styrki til nemenda á meistara- og doktorsstigi sem vinna að lokaverkefnum tengdum flugi eða ferðaþjónustu. Háskólarnir annast úthlutun úr sjóðunum.

Í gegnum samfélagssjóð leggur Isavia sitt af mörkum til þess að metnaðarfullt starf á ýmsum sviðum samfélagsins fái dafnað. Til að skerpa á málaflokknum hefur félagið lagt áherslu á: Forvarnarverkefni fyrir ungmenni, líknarmál, góðgerðarmál, umhverfismál og verkefni sem tengjast flugi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga