flugfréttir
Vandamál með hjólabúnað á Bombardier-vél
Bombardier Dash 8 Q400 flugvél frá Croatia Airlines
Vandamál kom upp með hjólabúnað á Bombardier Dash 8 Q400 flugvél hjá Croatia Airlines er vélin var í aðflugi að flugvellinum í Brussel í gær eftir flug frá Zagreb.
Fram kemur að ekki hafi komið grænt ljós fyrir nefhjól vélarinnar sem segir til um að hjólið
hafi farið niður og það í læstri stöðu.
Flugmenn vélarinnar ákváðu að fara í fráflug og hringsóluðu yfir Antwerp á meðan verið
var að athuga vandamálið en hálftíma síðar lenti vélin í Brussel.
Vélin náði ekki að yfirgefa brautina eftir lendingu og þurftu þeir 58 farþegar, sem voru um borð
í vélinni, að bíða í 45 mínútur.
Fluginu til baka til Zagreb var aflýst og var vélin dregin inn í skýli til skoðunar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.