flugfréttir
Airbus bjartsýnt á að pantanir fari að aukast í A380 á næstunni
Airbus A380 risaþotan
Airbus segist að nokkur bjartsýni ríki um að pantanir í risaþotuna Airbus A380 eigi eftir að dafna á ný eftir nokkur ár þar sem þrengsli á stórum flugvöllum verður stærra vandamál með hverju árinu.
Francois Caudron, markaðsstjóri Airbus, tekur fram að áhugi fyrir risaþotunni meðal flugfélaga sé ekki eins mikill
og gert var ráð fyrir í dag en framundan eru aukin umsvif í farþegaflugi og þrengsli á stærstu
flugvöllum heims sem mun á endanum opna augu flugfélaganna fyrir kosti þess að fljúga
risaþotum til stærri borga.
„Vorum við of bjartsýn með risaþotuna? - Mögulega“, segir Caudron og tekur fram að hann
sé sannfærður um að pantanir í A380 eigi eftir að fara hægtvaxandi á næstu árum.
Francois Caudron, markaðsstjóri Airbus
Qatar Airways hefur tekið fram að ekki komi til greina að staðfesta pöntun í fleiri
Airbus A380 risaþotur en félagið hefur fengið níu risaþotur afhentar af þeim tíu
sem félagið pantaði.
Qatar Airways þarf ekki fleiri risaþotur í bili
Qatar Airways hefur kauprétt á þremur risaþotum en Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri
félagsins, segir að ekki standi til að taka fleiri A380 þotur inn.
Al Baker tekur fram að langflugsáætlanir félagsins taki mið af því að nota tveggja hreyfla breiðþotur
í flug til fjarlægra áfangastaða en Airbus A380 risaþotan er meðal annars notuð í flug frá Doha
til London Heathrow, Bangkok, Guanzhou, Parísar og til Sydney.
Caudron segist alls ekki vera óánægður yfir því hversu mikið
hefur dregið úr áhuga Qatar Airways fyrir risaþotunni þar sem Emirates hafi tryggt þeim
næg verkefni framundan með nýrri pöntun í Airbus A380.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.