flugfréttir

Level í viðræðum við Boeing og Airbus um fleiri breiðþotur

- Stefna á að vera komnir með 15 breiðþotur á næstunni

26. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:01

Airbus A330-200 breiðþota Level

International Airlines Group (IAG), eignarhaldsfélag British Airways og Iberia, á nú í viðræðum við bæði Boeing og Airbus um kaup á nýjum þotum í flota lágfargjaldafélagsins Level sem stofnað var í fyrra.

Level er spænskt lágfargjaldafélag í langflugi sem hóf starfsemi sína í fyrra en félagið hóf sig á loft í júní með tvær Airbus A3302-00 breiðþotur.

Willie Walsh, framkvæmdarstjóri IAG, segir að stefnt sé á að floti félagsins nái fimmtán breiðþotum á næstunni.

Walsh segir að Airbus A330-200 vélin hafi reynst einstaklega hagstæð fyrir reksturinn og sé búið að reikna út að Boeing 787 muni ekki ná að bjóða upp á eins mikla hagræðingu með tilliti til sparneytnis eins og staðan er í dag.

Samt sé í myndinni að taka einhverjar Boeing 787 þotur þar sem fleiri flugmenn, með áritun á þá vél, séu tiltækir og þá séu vélarnar að verða ódýrari í rekstri en á næstu fimm árum sé Airbus A330-200 „rétta vélin“ fyrir reksturinn.

Í sumar mun félagið hefja flug til Boston, Montréal, Guadaloupe, Martinique og Newark og þá mun félagið einnig byrja að fljúga frá Orly-flugvellinum í París sem verður önnur bækistöð félagsins á eftir Barcelona.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga