flugfréttir
Emirates hótar að hætta við pöntun í 150 Boeing 777X þotur
- American, Delta og United vilja að loftferðasamningnum verði breytt
Boeing 777 þota Emirates á flugvellinum í Dubai
Emirates hefur lýst því yfir að til greina komi að afturkalla risapöntun félagsins í 150 þotur af gerðinni Boeing 777X ef bandarísk stjórnvöld ætla sér að breyta loftferðasamningi sem undirritaður var milli Miðausturlanda og Bandaríkjanna árið 1999.
Bandarísku flugfélögin þrjú, American Airlines, Delta Air Lines og United Airlines, hafa lengi
þrýst á bandarísk stjórnvöld til að grípa í taumanna gagnvart „yfirgangi“ flugfélaganna
þriggja fyrir botni Persaflóa sem hafa verið að auka umsvif sín til Norður-Ameríku í miklu mæli.
Flugfélögin hafa meðal annars sakað Emirates, Qatar Airways og Etihad Airways um að þiggja
ólögmæta styrki frá ríkisstjórnum Qatar og Sameinuðu arabísku furstadæmanna og vilja
bandarísku flugfélögin að stjórnvöld setji stólinn fyrir dyrnar með því að breyta
19 ára gömlum „Open Skies“ sáttmála um flugferðir milli Miðausturlanda og Bandaríkjanna.
Tim Clark, forstjóri Emirates
Tim Clark, forstjóri Emirates, segir í viðtali við Business Insider að ef
breyting verði gerð á loftferðasáttmálanum að þá muni Bandaríkin fá það beint í bakið.
„Eitt er víst að við munum þá ekki þurfa þessar 150 Boeing 777X þotur sem búið er að panta
frá Bandaríkjunum“, segir Clark en áhrifin yrðu víðtækari fyrir bandarískt efnahagslíf
því Emirates hefur einnig pantað 300 hreyfla af gerðinni GE9X frá bandaríska
fyrirtækinu General Electric að verðmæti eitt þúsund og sexhundruð milljarða króna.
„Þeir vita það mjög vel að Emirates hefur ekki þegið krónu í styrk. Það vita allir. En American,
Delta og United hafa öll gengið í gegnum Chapter 11 gjaldþrotameðferðina og sum þeirra
oftar en einu sinni - en þeim gengur vel í dag. Ég skal éta handlegginn minn ef þau fengu ekki
styrk til þess að koma sér út úr þeim vandræðum“, segir Clark.
Open Skies loftferðasáttmálin var undirritaður af Bandaríkjunum og Sameinuðu arabísku furstadæmunum
árið 1999 og var eina undantekningin sem gerð var sú að arabískt flugfélag mætti ekki fljúga innanlandsflug
í Bandaríkjunum.
Clark segir að breyting á loftferðasáttmálunum myndi aðeins koma í bakið á flugiðnaðinum á Bandaríkjunum
þar sem hann snertir einnig önnur flugfélög sem fljúga til Bandaríkjanna á borð við Air France og Air China.
Markaðssérfræðingar í flugmálum efast um að Emirates myndi ganga svo langt að hætta við pöntun á 150
þotum ef Bandaríkin myndu breyta loftferðasáttmálanum.
„Emirates hefur enga aðra þotu til að skipta út fyrir Boeing 777X. Airbus A350 er ekki eins öflug
þota fyrir Emirates. Þeir komu að þróun Boeing 777X sjálfir sem er að hluta til hönnuð fyrir þarfir Emirates“, segir
Saj Ahmad, ráðgjafi hjá StrategicAero Research.
„Þar að auki þá vita Bandaríkin að Emirates tryggir þúsundir starfa hjá Boeing, GE Aviation og hjá fleiri fyrirtækjum
í flugiðnaðinum þannig að stjórnvöld munu ekki stofna störfum í hættu með því að fara breyta loftferðasamningnum
bara til að uppfylla óskir þriggja bandarískra flugfélaga sem fljúga ekki einu sinni til Dubai“.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.