flugfréttir
Hawaiian: „Höfum ekki hætt við pöntunina í A330-800“
Tölvugerð mynd af Airbus A330-800 í litum Hawaiian Airlines
Hawaiian Airlines segir að félagið hafi ekki hætt við pöntun sína í Airbus A330-800neo þotuna.
Greint var frá því í síðustu viku að félagið hefði hætt við samkomulag við Airbus um
pöntun á sex þotum af þessari gerð og tekið tilboði Boeing í sex Dreamliner-þotur af gerðinni
Boeing 787-9.
„Það hefur ekki verið hætt við pöntunina í Airbus A330-800“, segir Ann Botticelli, talsmaður
Hawaiian Airlines. - „Það sem hefur hinsvegar komið fram er að við höfum átt
í viðræðum við Boeing og Airbus um nýjar þotur en við höfum ekki gert neitt samkomulag
við hvorugan framleiðandann“.
Hawaiian Airlines á að taka við tveimur Airbus A330-800neo þotum árið 2019 og tveimur
til viðbótar árið 2020 en tvær seinustu vélarnar verða afhentar árið 2021.
Airbus hefur þegar lokið við smíði á fyrstu A330-800 tilraunaþotunni sem mun fljúga
jómfrúarflugið í sumar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.