flugfréttir
Útlitið er of svart: Lufthansa þarf að hanna bláa litinn upp á nýtt
- Gleymdist að gera ráð fyrir mismunandi birtuskilyrðum
Boeing 747-8 júmbó-þota Lufthansa í nýju litunum
Mistök voru gerð við hönnun á nýja útlitinu fyrir Lufthansa sem þarf nú að endurskoða nýja litabúninginn sem flugfélagið þýska hefur kynnt til sögunnar.
Þrjár vikur eru liðnar frá því Lufthansa kynnti nýja liti sem er fyrsta breytingin
á flugvélabúning flotans sem gerð hefur verið í 30 ár.
Lufthansa hefur hinsvegar komist að því að sennilega er blái liturinn of dökkur og er
því verið að skoða hvort að lagfæra þurfi hönnunina en nú þegar er búið að mála
nokkra vélar í flotanum í nýju litunum.
Til stóð að nýi blái liturinn ætti að vera dekkri en ekki svo dökkur að hann verði nánast svartur
„Eftir að hafa séð ljósmyndir af vélunum í mismunandi birtu á flugvöllum í New York
og í Hong Kong þá höfum við séð að blái liturinn er of dökkur og mun dekkri en hann
leit út í því umhverfi sem notað var þegar liturinn var valinn“, segir talsmaður Lufthansa.
Svo virðist sem að blái liturinn líti út fyrir að vera svartur í dimmu veðri, þegar það
er alskýjað og einnig í ljósaskiptunum þegar sól er lágt á lofti.
40 flugvélar verða málaðar í ár í nýju litunum
„Verkefnið næstu vikurnar eru að endurhanna dökkbláa litinn þannig hann verði
eins og hann á að vera í óheppilegum birtuskilyrðum. Um mjög litla fínpússningu er að ræða
þar sem markmiðið er að liturinn verði áfram dökkblár án þess að líta út fyrir að vera svartur“, segir
talsmaður félagsins.
Airbus A321 þota Lufthansa í nýju litunum
Nýja útlitið hjá Lufthansa varð fyrir einhverri gagnrýni þegar félagið kynnti þessa hönnun og
þá sérstaklega þar sem félagið ákvað að nota ekki gula litinn meira.
Hinsvegar var gerð skoðanakönnun á Netinu í Þýskalandi og þar kom í ljós að um 80%
þátttakenda líkaði vel við nýju litina.
Mögulega gæti blái liturinn sloppið í þessari birtu
Önnur könnun leiddi í ljós að 51% aðspurðra töldu að vel hefði tekist til með nýju litunum, 32 prósent telja það vera afturför
og 17% voru óákveðnir.
Lufthansa hefur 270 flugvélar í flota sínum en til stendur að mála 40 flugvélar á þessu ári
og er því ljóst að það mun taka sinn tíma að mála allann flotann.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.