flugfréttir
Comac fær pöntun í fimmtíu C919 og ARJ21 þotur
Frá undirritun kaupsamningsins í gær í Peking á þotunum fimmtíu
Kínverska fjárfestingarfyrirtækið China Huarong Financial Leasing hefur gert samkomulag við Comac um kaup á fimmtíu farþegaþotum af gerðinni C919 og ARJ21.
Fyrirtækið hefur panntað þrjátíu Comac C919 þotur sem fjölgar heildarpöntunum
í þá flugvél upp í 815 þotur og tuttugu ARJ21 þotur sem er þá komin upp í 453 seld eintök.
C919 þotan flaug sitt fyrsta flug í maí í fyrra en flugvélin er ekki en komin í umferð
þar sem tilraunir standa enn yfir en þær hafa dregist á langinn vegna seinkanna.
ARJ21 þotan flaug sitt fyrsta flug í nóvember árið 2008 og var hún afhent til Chengdu Airlines
sem er eina flugfélagið sem hefur fengið vélina afhenta en fyrsta eintakið var afhent
árið 2016.
Flestir þeir viðskiptavinir sem hafa pantað ARJ21 og C919 þoturnar eru kínversk
fyrirtæki og flugfélög en flugvélaleigan GECAS er eini bandaríski viðskiptavinurinn
en aðrir viðskiptavinir utan Kína, sem hafa pantað þessar þotur, koma frá Laos, Kongó og
Indónesíu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.