flugfréttir
Tveir laumufarþegar féllu til jarðar úr Boeing 767 í flugtaki
Boeing 767-300 breiðþota LATAM í flugtaki
Tveir laumufarþegar létu lífið í gær í Ekvador er þeir féllu til jarðar úr hjólarými á Boeing 767 breiðþotu í flugtaki frá borginni Guayaquil á leið til New York.
Þotan sem er af gerðinni Boeing 767-300, er frá flugfélaginu LATAM, og var vélin nýkomin
á loft þegar þeir féllu til jarðar en talið er að þeir hafi komist inn á flugvallarsvæðið og hlaupið
að hjólastéllinu rétt áður en vélin fór í flugtaksbrun.
Lögreglan í Ekvador hefur ekki viljað gefa upp kyn eða þjóðerni laumufarþeganna en
dagblaðið El Comecio greinir frá því að um tvo karlmenn hafi verið
að ræða sem voru 25 og 30 ára og er talið að þeir hafi komið frá Perú og ætlað sér að komast
ólöglega til Bandaríkjanna.
Flugvellinum í Guayaquil var lokað í eina og hálfa klukkustund í kjölfar atviksins og var flugvélinni
gert að snúa við en hún fór skömmu síðar aftur á loft, áleiðis til John F. Kennedy flugvallarins
í New York.
Lögregla og sjúkralið að störfum í gær á flugvellinum í Guayaquil í gær
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.