flugfréttir

Flugmenn skora á O´Leary að hætta og yfirgefa Ryanair

- Flugmenn eru enn að segja upp störfum og hætta hjá félaginu

27. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:56

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair

Hópur flugmanna hjá Ryanair skorar nú á Michael O´Leary til að segja starfi sínu lausu og hætta sem framkvæmdarstjóri félagsins.

Í bréfi sem samtök flugmanna Ryanair á meginlandi Evrópu hafa sent frá sér kemur fram að flugmenn séu enn að yfirgefa félagið í stórum stíl vegna ástandsins og sé Michael O´Leary engan veginn að geta ráðið við öll þá vandamál sem hrjá félagið og sérstaklega þau sem snúa að starfsmannamálum.

Í bréfinu kemur fram að sá flugmannaskortur sem upp kom síðastliðið haust, er félagið þurfti að aflýsa yfir 20.000 flugferðum, sé aðeins byrjunin en núna stefnir í að Ryanair þurfi að aflýsa fjölda flugferða um páskana vegna verkfalla sem boðað hefur verið til.

„Samkvæmt okkar heimildum þá lítur út fyrir að fleiri raskanir á flugferðum séu óumflýjanlegar þar sem flugmenn eru enn að segja upp störfum og yfirgefa félagið“, segir í bréfinu.

Framkvæmdarstjóri Ryanair segir að það sé bull og vitleysa að það sér skortur á flugmönnum innan herbúa félagsins

Yfirmaður hjá Ryanair sagði fyrir nokkrum vikum að félagið hefði nógu marga flugmenn til að fljúga flugvélum félagsins en í bréfi flugmanna kemur fram að heimildir séu fyrir því að flugmenn séu enn að yfirgefa félagið í hrönnum og sé verið að þrýsta á aðra flugmenn til að taka að sér fleiri aukavaktir.

„Við leggjum til að þú farir núna úr stólnum og kallað verði til stjórnarfundar með fjárfestum og nýr framkvæmdarstjóri verður fundinn svo hægt verði að koma rekstri félagsins á rétt ról“, segir í bréfinu.

Ryanair segir að 80% af flugmönnum félagsins hafi nú þegar þegið 20 prósenta launahækkun en samt sem áður er aðeins búið að ná að semja við breska flugmenn en viðræður hafa staðið yfir í nokkrar vikur við flugmenn í sjö öðrum Evrópulöndum sem hafa ekki enn viljað taka tilboði félagsins um launahækkun.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga