flugfréttir
Klemmuspjald með pappírum sogaðist inn í hreyfil á A320
- Setti spjaldið frá sér í hreyfilinn svo pappírarnir myndu ekki blotna
Myndin er samsett og tengist ekki efni fréttarinnar með beinum hætti
Farþegaþota af gerðinni Airbus A320 frá ástralska flugfélaginu Jetstar þurfti að snúa við þegar í ljós kom flugvallarstarfsmaður hafði óvart lagt frá sér klemmuspjald með pappírum inn í annan hreyfilinn fyrir brottför.
Atvikið átti sér stað þann 27. október í fyrra á flugvellinum í Auckland á Nýja-Sjálandi en slæmt veður var á flugvellinum er atvikið átti sér stað og rigning.
Áströlsk flugmálayfirvöld greindu frá atvikinu í gær en þar kemur fram að starfsmaður
flugvallarins hafi sett spjaldið frá sér í hreyfilinn til að pappírarnir myndu ekki blotna
í rigningunni.
Vélin var hinsvegar byrjuð að aka í átt að flugbrautinni fyrir flugtak þegar starfsmaðurinn
áttaði sig á því að hann var ekki með klemmuspjaldið og gerði sér þá grein fyrir að hann
setti það frá sér í hreyfil vélarinnar.
Myndir frá ATSB í Ástralíu af braki við hreyfilinn
Smávægilegt brak með leifum af spjaldinu auk pappírs fannst við stutta leit og hafði
flugumferðarstjóri samband við flugmennina og þeir látnir vita að pappírar hefðu sennilega farið inn í hreyfilinn.
Er flugstjórinn spurði hvort að pappírarnir hafi verið á klemmuspjaldi þá ákvað hann að best væri að snúa við til Auckland en þá var vélin komin í 15.000 feta hæð.
Minniháttar skemmdir urðu á hreyflablöðum við nánari skoðun sem urðu er klemmuspjaldið
sogaðist inn í hreyfilinn er hann var ræstur eftir að búið var að ýta vélinni frá brottfararhliði.
Fram kom í niðurstöðum frá áströlskum flugmálayfirvöldum að engar
reglugerðir eru til staðar hjá Jetstar varðandi meðhöndlun á pappírsvinnu í slæmu veðri
en flugfélagið sendi út yfirlýsingu til starfsmanna þar sem bent er á að hreyflarnir
séu ekki gáfulegur staður til að setja hlutina frá sér rétt fyrir brottför.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.