flugfréttir

Önnur flugbrautin í Dubai verður lokuð í 45 daga árið 2019

27. febrúar 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:09

Frá flugvellinum í Dubai

Önnur flugbrautin á flugvellinum í Dubai verður lokað í 45 daga á næsta ári vegna viðgerðar og endurbóta á brautinni.

Dubai-flugvöllur er starfræktur allan sólarhringinn, alla daga ársins en vikulega fara fram minniháttar skoðanir á brautunum en þegar kemur að stærri framkvæmdum þá dugar ekkert minna en að loka brautinni.

Líftími 12R-30L brautarinnar er senn á enda en yfir 1.100 flugtök og lendingar eiga sér stað á flugvellinum á hverjum degi og er meirihluta þeirra vél, sem fara um völlinn, breiðþotur og risaþotur á vegum Emirates.

Til stendur að setja nýtt yfirlag á flugbrautina og endurnýja flugbrautarljós og annan búnað en sambærilegar framkvæmdir fóru fram á nyrðri flugbrautinni á Dubai-flugvelli árið 2014.

Yfir 60.000 tonn af malbiki munu fara í framkvæmdirnar og 80 þúsund tonn af steypu ásamt því að lagðir verða 800 kílómetrar af leiðslum sem tengja 5.500 mismunandi ljós á flugbrautinni.

Þeim flugfélögum, sem fljúga til Dubai, hefur verið gert viðvart og þau beðin um að undirbúa að frá apríl fram í maí 2019 verður aðeins ein flugbraut í notkun en þeim er bent á þann möguleik að nota nýja Dubai World Central (DWC) flugvöllinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga