flugfréttir
Norwegian stefnir á flug milli Suður-Ameríku og Asíu
- Sækja um leyfi fyrir flugi frá Buenos Aires til Perth og áfram til Singapore
Norwegian skoðar nú þann möguleika á að tengja saman Suður-Ameríku og Asíu með viðkomu í Perth í Ástralíu
Norwegian ætlar sér að verða fyrsta flugfélagið í heimi til að tengja Suður-Ameríku og suðausturhluta Asíu með reglubundnu farþegaflugi með viðkomu í Ástralíu og myndi flugleiðin liggja mjög nálægt Suðurheimskautslandinu.
Það er argentínska dótturfélagið, Norwegian Air Argentina, sem leggur nú drög að því að hefja flug milli Buenos Aires og Perth og þaðan
áfram til Singapore en í dag er ekkert beint flug milli Argentínu og Ástralíu eftir að Qantas
hætti að fljúga til Buenos Aires.
Nú þegar hefur verið sótt um leyfi fyrir fluginu og hefur viðskiptaráð Argentínu sent
umsókn til yfirvalda í vesturhluta Ástralíu fyrir fyrirhugaðri flugleið.
Norwegian byrjaði að fljúga til Bueons Aires um miðjan febrúar
China Southern Airlines, Singapore Airlines og Qantas hafa öll rétt á því að fljúga milli
Ástralíu og Suður-Ameríku en engin af þeim nýta sér þann rétt í dag.
Flugið milli Buenos Aires og Perth myndi taka um 15 klukkustundir og yrði Perth
því viðkomustaður fyrir farþega á leiðinni milli Asíu og Suður-Ameríku en ekkert
beint flug er í dag á milli Suður-Ameríku og suðausturhluta Asíu.
Airbus A350, Boeing 787 og Boeing 777 geta allar flogið þessa vegalengd í dag en ekki
væri flogið beint yfir Suðurskautslandið þar sem of langt er til næsta varaflugvallar en
hinsvegar væri flogið milli Antarktíku og Suður-Afríku svo hægt væri að nýta sér
hagstæða háloftavinda á leiðinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.