flugfréttir
Finnair ætlar að fjölga flugferðum til Rússlands
Airbus A350 þota Finnair
Finnair ætlar sér að fjölga flugferðum til Rússlandi en félagið segir að næstum 30 prósent aukning hafi verið í eftirspurn eftir fargjöldum til landsins í fyrra.
Finnair hefur nú þegar tvöfaldað framboð sitt á flugi til Moskvu frá Helsinki og flýgur
félagið nú tvö flug á dag til höfuðborgarinnar rússnesku auk þess sem félagið flýgur sex sinnum
í viku til St. Petersburg.
Félagið ætlar sér að skipta út ATR skrúfuvélinni á flugleiðinni til St. Petersburg fyrir Embraer E190
þotu til að auka sætaframboðið um 30 prósent.
Rússar hafa nýtt sér flugið hjá Finnair til að komast áfram frá Helsinki til annarra evrópuborga
en uppáhalds Evrópuborgir meðal Rússa eru Alicante, París, Prag, Stokkhólmur, Mílanó
og Munchen.
Þá hafa Rússar einnig flogið áfram frá Helsinki til New York, Chicago, Miami og San
Francisco en Finnair hefur verið leiðandi flugfélag í framhaldsflugi milli Asíu og Norður-Ameríku.
Í dag flýgur Finnair til fimm borga í Rússlandi sem eru Kazan, Moskva, Murmansk, St. Petersburg
og Yekaterinburg.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.