flugfréttir
Ryanair mun yfirgefa Glasgow - Hætta flugi til 20 borga í haust
- Fækka áfangastöðum úr 23 niður í aðeins þrjá um GLA
Boeing 737-800 þota Ryanair á flugvellinum í Glasgow
Ryanair ætlar sér að hætta með Glasgow sem bækistöð en við það munu umsvif félagsins um völlinn dragast saman umtalsvert og gætu allt að 300 manns misst vinnuna sína vegna þessa.
Ryanair kennir nýju brottfararsköttunum um sem Skotland kynnti til sögunnar í kjölfar Brexit en félagið
segir að með þessu verði ekki arðbært fyrir Ryanair að fljúga um Glasgow sem lágfargjaldafélag.
Með þessu mun Ryanair fljúga aðeins til þriggja áfangastaða frá Glasgow (GLA) í stað 23 áfangastaða
og er því um að ræða 82% fækkun áfangastaða.
Ryanair ætlar sér í haust að hætta að fljúga til 20 áfangastaða frá Glasgow sem
eru Alicante, Berlín, Charleroi, Derry,
Frankfurt, Gran Canaria, Lissabon, Lanzarote, London Stansted, Madríd, Málaga,
Riga, Sofia, Valencia, Varjsá, Bydgoszcz, Carcassonne, Chania og Palanga.
Eftir það verða Dublin, Krakow og Wroclaw einu áfangastaðirnir sem félagið mun fljúga
til frá Glasgow (GLA).
David O´Brian, rekstarstjóri Ryanair
Ryanair ætlar einnig að draga úr starfsemi sinni á
Prestwick-flugvellinum í Glasgow og í Aberdeen en ellefu áfangastaðir verða færðir yfir til Edinborgar.
„Því miður þá mun bækistöð okkar í Glasgow loka og um hálf milljón farþega mun færast
yfir til Edinborgar. Viðkvæmur efnahagur í Skotlandi er enn viðkvæmari í Glasgow og við hreinlega
getum ekki haldið starfsemi okkar áfram þegar það leggst 1.800 krónur ofan á hvern einasta farþega í skatt“,
segir David O´Brian, rekstarstjóri Ryanair.
„1.800 krónur (13 sterlingspund) er meira en þriðjungurinn af meðalverði á fargjöldum okkar“, bætir
O´Brian við.
Stuart Patrick, framkvæmdarstjóri viðskiptaráðsins í Glasgow, segir það mikil vonbrigði að Ryanair ætli sér
að yfirgefa flugvöllinn með þessum hætti og sé hann mjög hissa á þessari ákvörðun.
„Glasgow-flugvöllurinn hefur verið að stækka og dafna sl. ár og það að heyra að flugfélag ætlar sér
að draga svona mikið úr umsvifum sínum kemur virkilega á óvart“, segir Stuart.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.