flugfréttir
Embraer E190-E2 fær vottun frá þremur flugmálayfirvöldum
Embraer E190-E2 þotan
Brasilíski flugvélaframleiðandinn hefur fengið flughæfnisvottun frá þremur flugmálayfirvöldum fyrir nýju Embraer E190-E2 þotunni.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA), flugmálayfirvöld í Evrópu (EASA) og brasilísk flugmálayfirvöld (ANAC) hafa
öll gefið þotunni grænt ljós sem þýðir að afhendingar geta hafist um leið og fyrsta eintakið er tilbúið.
Það er norska flugfélagið Widerøe sem verður fyrsta flugfélagið til að taka við Embraer E190-E2 þotunni
en félagið ætlar að fljúga fyrsta flugið með þotunni þann 24. apríl.
Embraer 190-E2 er miðstærðin af E2 þotunum og tekur hún 114 farþega en minni þotan er E175-E2 sem tekur 90
farþega en stærri vélin, E195-E2, tekur 146 farþega.
E2 þotan er allt að 17% sparneytnari en aðrar E-þotur frá Embraer en með enn frekari breytingum og lagfæringum
á hönnunarstiginu hefur framleiðandinn náð að auka ýmsa eiginleika vélarinnar og þar á meðal að auka flugþolið
sem gerir vélinni m.a. kleift að fljúga til fleiri áfangastaða frá London City flugvellinum.
Sjö flugfélög í heiminum hafa pantað til samans 228 eintök af Embraer E2 þotunni en
SkyWest Airlines í Bandaríkjunum hefur stærstu pöntunina sem telur 100 eintök af Embraer E175-E2 þotunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.