flugfréttir

Ekki tilbúnir að smíða hreyfla fyrir 70 A320neo þotur á mánuði

5. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:00

Safran, í samvinnu við CFM International, framleiða LEAP-1A hreyfilinn fyrir Airbus A320neo á meðan Pratt & Whitney framleiða PW1000G hreyfilinn

Báðir hreyflaframleiðendurnar, sem framleiða hreyfla fyrir Airbus A320neo þotuna, segast ekki vera tilbúnir til að auka afköst sín í takt við Airbus sem ætlar sér að hækka framleiðsluhraðann upp í sjötíu Airbus A320neo þotur á mánuði.

Safran Aircraft Engines og Pratt & Whitney framleiða sitthvora tegundina af hreyflum sem standa viðskiptavinum til boða sem eru LEAP-1A hreyfillinn og PW1000G.

Þotur í A320-fjölskyldunni eru í dag smíðaðar á fjórum stöðum í heiminum, Í Bandaríkjunum, Frakklandi, Þýskalandi og í Asíu en Airbus ætlar sér að auka afköstin upp í 70 Airbus A320neo þotur á mánuði frá og með næsta ári.

Philippe Petircolin, framkvæmdarstjóri Safran, telur að það sé aðeins of snemmt að auka afkastagetuna svona ört og það strax árið 2019 og efast hann um ávinninginn af því þar sem ekki er búið að athuga hvort að framleiðandinn geti smíðað svo marga hreyfla á þeim tíma.

Bæði Safran og Pratt & Whitney eru að framleiða hreyfla í dag með hámarksafköstum, bæði fyrir flugvélar frá Boeing og Airbus.

Boeing ætlar sér einnig að auka framleiðslu á Boeing 737 upp í 70 þotur á mánuði á næsta ári þar sem pantanir í nýjar þotur af þeirri gerð hrúgast upp.

Á sama tíma hefur Pratt & Whitney verið að berjast við vandamál með PW1000G hreyflana frá því að Airbus A320neo kom á markaðinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga