flugfréttir

Miðnætursól og grænlenskar þjóðsögur í breiðþotu Air Greeland

- Bjóða farþegum upp á að upplifa Grænland um leið og þeir ganga um borð

5. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 20:36

Um borð í „Norsaq“, Airbus A330-200 breiðþotu Air Greenland

Airbus A330 breiðþota Air Greenland er aftur komin í flota félagsins eftir viðamikla skoðun og yfirhalningu.

Þotan, sem kallast „Norsaq“, er eina Airbus A330 þotan í flota Air Greenland sem flestir Grænlendingar og Danir þekkja sem „stóru, rauðu flugvélina“ en flugvélin hefur oftast verið notuð á leiðinni milli Kangerlussuaq og Kaupmannahafnar.

Á meðan Airbus A330 þotan var í burtu í yfirhalningu þá tók félagið á leigu aðra vél sömu gerðar frá portúgölsku flugvélaleigunni HiFly sem hefur flogið fyrir flugfélagið grænlenska frá 25. janúar fram til 2. mars.

Air Greenland ákvað samt að nota tækifærið og útbúa ákveðna upplifun fyrir farþega með myndskreytingum úr grænlenskum þjóðsögum sem prýða veggjaklæðningar vélarinnar að innan auk þess sem „mood“ lýsingu var komið fyrir um borð.

Myndskreyting úr grænlenskri þjóðsögu á veggjunum

Sérsamin tónlist og hljómar sem endurspegla hljóð úr grænlenskum íshellum mun taka á móti farþegum er þeir ganga um borð í vélina innan um appelsínugula og rauða lýsingu í farþegarýminu sem táknar miðnætursólina á meðan blá og græn lýsing táknar ísjakana á sjónum í kringum Grænland.

„Margir okkar farþega hafa sagt að eftirvæntingin þeirra byrji strax er þeir fara um borð í „Norsaq“ og við erum mjög stollt af því að heyra það. Þessvegna var ákveðið að breyta aðeins vélinni og gefa farþegum smá upplifun strax er þeir koma um borð svo þeir finna að þeir eru á leið til lands sem er mjög sérstakt“, segir Maliina Abelsen hjá Air Greenland.

Þá segir í fréttatilkynningu frá Air Greenland að einnig standi til að koma upp afþreyingarkerfi öll sæti á næstunni.











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga