flugfréttir
Taka sennilega 100 Boeing 737 MAX 200 þotur til viðbótar
Ryanair fær sína fyrstu Boeing 737 MAX 200 þotu á öðrum ársfjórðungi 2019
Ryanair gerir ráð fyrir að félagið muni fullnýta þann kauprétt sem félagið hefur á Boeing 737 MAX 200 þotunum en félagið pantaði 737 MAX 200 í september árið 2014, sama dag og Boeing kynnti þessa útáfu af 737 MAX þotunni sem verður sérstaklega ætluð fyrir lágfargjaldaflugfélög.
Ryanair hefur pantað 110 eintök af þotunni með möguleika á 100 þotum til viðbótar en Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri
Ryanair, sagði í dag að félagið muni sennilega taka þessar hundrað þotur til viðbótar.
„Ég býst við því að við munum taka allar þær Boeing 737 MAX 200 þotur sem við höfum rétt á“, segir Leary
en félagið fær fyrsta eintakið afhent árið 2019.
Boeing segir að 737 MAX 200 verði hagkvæmasta mjóþota heims þegar hún kemur á markað á næsta ári og verði hún allt að 20 hagkvæmari heldur en hefðbundin Boeing 737 þota er í dag og 5 prósent hagkvæmari en Boeing 737 MAX.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.