flugfréttir
Farþegum með Icelandair fækkaði um 5 prósent í febrúar
Boeing 767-300ER breiðþota Icelandair á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam
Fimm prósent færri farþegar flugu með Icelandair í febrúarmánuði sem leið samanborið við febrúar í fyrra.
Alls voru 190.720 farþegar sem flugu með félaginu í síðasta mánuði en í febrúar 2017 voru 200.264 farþegar
sem flugu með Icelandair.
Fækkunin skýrist að mestu leyti af fækkun farþega til Íslands en fram kemur að eftirspurnin hafi ekki verið að aukast í takt við heildarframboðsaukningu á markaðinum.
Framboð dróst saman um 1% en sætanýting í febrúar á þessu ári var 74,3% samanborið við 75,9% í febrúar í fyrra.
Farþegar Air Iceland Connect voru tæp 22 þúsund og fækkaði um 3% á milli ára en mikið var um veðurraskanir í innanlandsflugi og fjöldi fluga var felldur niður í mánuðinum vegna þessa.
Framboð í febrúar var 11% meira en í febrúar á síðasta ári og skýrist það af flugi til Belfast sem flogið er í samstarfi við Icelandair sem hófst í júní 2017 ásamt flugi á milli Keflavíkur og Akureyrar sem byrjaði í lok febrúar árið 2017.
Sætanýting í vélum Air Iceland Connect mældist 62,6 prósent sem er 5.4 prósentustigum minna en í febrúar 2017 þegar sætanýtingin mældist 68 prósent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.