flugfréttir

Kínverska ARJ21 þotan í prófunum í Keflavík

- Verður í prófunum í hliðarvindi næstu vikurnar

6. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:42

ARJ21-700 þotan á Keflavíkurflugvelli í kvöld / Ljósmynd: Sigurður Björgvin Magnússon

Ein af nýjustu farþegaþotum Kínverja, ARJ21 þotan frá Comac, er nú stödd á Íslandi en þotan lenti á Keflavíkurflugvelli á sunnudag.

Vélin hefur verið í flugprófunum á Norðurlöndunum frá því í seinustu viku og er þetta fyrsta flug ARJ21 þotunnar til Evrópu.

ARJ21 þotan verður hér á landi í nokkrar vikur í flugprófunum en vélin verður eingöngu í prófunum í hliðarvindi og er nú beðið eftir að það fari að hvessa.

„Þeir eru að gera allt klárt fyrir mælitæki og setja upp búnað sem þarf til mælinga og svo á morgun verður farið í flug til að leyfa flugmönnunum að kynnast flugvellinum og svo byrja sjálfar hliðarvindslendingarnar á föstudag ef veður leyfir“, segir Ingimar Ingimarsson.

ARJ21 þotan verður við prófanir á Keflavíkurflugvelli fram í síðustu vikuna í mars

Tilraunaþotan, sem ber skráninguna B-001Q, kom hingað til lands frá Bergen í Noregi en þangað kom vélin frá Helsinki sem var fyrsti viðkomustaður vélarinnar í Skandinavíu.

„Hún þarf að hafa hliðarvind upp á 22 til 32 hnúta sem eru kröfurnar. Það merkilega er að þennan vind er ekki hægt að finna í Kína. Það er ekki svona hvasst þar. Þessvegna koma þeir alla leið hingað“, segir Ingimar en þess má geta að nokkrar af nýjustu þotum Airbus hafa komið hingað til lands til að nýta íslenska rokið til prófanna í hliðarvindi.

ARJ21 stendur fyrir „Advanced Regional Jet of the 21st Century“ en hönnun vélarinnar hófst árið 2002 og átti þotan upphaflega að koma á markað árið 2005 en 8 ára seinkun varð á framleiðslunni og var fyrsta eintakið ekki afhent fyrr en árið 2015.

ARJ21 þotan kom á markaðinn júní 2016

Tíu þotur hafa verið smíðaðar og er kínverska flugfélagið Chengdu Airlines eina flugfélagið sem hefur fengið þotuna afhenta og er félagið komið með fjórar þotur.

ARJ21 er ætlað að etja kappi við farþegaþotur frá Embraer og CRJ og CSeries-þoturnar frá Bombardier en aðeins kínversk flugfélög hafa pantað þessa flugvélategund auk tveggja pantanna frá Kongó og Indónesíu.

ARJ21 þotan eru eingöngu ætluð fyrir innanlandsflug en vélin hefur flugdrægi upp á 3.700 kílómetra og getur vélin því flogið milli flestra borga borga í Kína en þess má geta að eitt lengasta áætlunarflug í Kína tekur 6:30 klukkustundir sem er flugið milli borganna Guangzhou og Kashgar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga