flugfréttir

United íhugar alvarlega CSeries eða E2-þotuna frá Embraer

7. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:22

Flugvélar United Airlines

Bombardier og Embraer berjast nú um að fá pöntun frá United Airlines sem segist vera að íhuga kaup á annað hvort CSeries-þotunni eða E2-þotunum, nýju kynslóðinni af E-þotunni frá Embraer.

Þetta er haft eftir Andrew Levy, fjármálastjóra United Airlines, en einnig er verið að skoða Airbus A319neo þotuna og þá kemur Boeing 737 MAX 7 þotan líka til greina.

United Airlines er að leita að þotu sem tekur 110 til 130 farþega en með henni gæti félagið komið til móts við þá 4 til 6 prósenta farþegaaukningu sem framundan er í flugi með vélum í þessum stærðarflokki til ársins 2020.

Að öðru leyti hefur United Airlines ætlað sér að nota CRJ200 þotuna til að koma til móts við eftirspurnina en það er hinsvegar sögð vera aðeins „tímabundin“ lausn.

United Airlines hefur lýst því yfir að hagkvæmara sé fyrir félagið að fljúga stærri þotum en minni vélum á styttri flugleiðum í innanlandsflugi.

Pöntun frá United Airlines væri mikill sigur fyrir bæði Bombardier og Embraer sem hafa hvorugir náð að fá eins margar pantanir í CSeries og E2-þotuna eins og framleiðlendurnir vonuðust til í upphafi.

Bombardier hefur þó fengið pantanir í 346 CSeries-þotur frá átján viðskiptavinum á meðan sjö flugfélög hafa pantað 228 eintök af E2-þotunni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga