flugfréttir
Cobalt Air orðið meðlimur í IATA
- Fyrsta kýpverska flugfélagið í IATA eftir gjaldþrot Cyprus Airways
Airbus A319 þota Cobalt Air á Barajas-flugvellinum í Madrid
Kýpverska flugfélagið Cobalt Air er nú orðið meðlimur að Alþjóðasamtökum flugfélaganna (IATA) en innan við tvö ár eru liðin frá því að félagið hóf flugrekstur.
Cobalt Air var annað flugfélagið á Kýpur sem stofnað var eftir gjaldþrot Cyprus Airways sem hætti
starfsemi sinni árið 2015 en fyrsta kýpverska flugfélagið sem byrjaði að fljúga eftir gjaldþrot
þess var Tus Airways.
Cobalt Air getur með þessu farið í samstarf við önnur flugfélög innan IATA og boðið upp á sameiginlega
farmiðaútgáfu með öðrum flugfélögum sem býður þá upp á fleiri áfangastaði og tengiflug fyrir farþega.
Forsvarsmenn Cobalt Air taka við viðurkenningu frá yfirmönnum IATA
Cobalt Air hefur fjórar Airbus A320 þotur í flota sínum og tvær af gerðinni Airbus A319 og flýgur félagið til 23 áfangastaða í þrettán löndum
sem öll eru í Evrópu, Rússlandi og í Miðausturlöndum en þess má geta að þann 27. mars mun félagið byrja að fljúga til Heathrow-flugvallarins í London.
Félagið á svo von á fyrstu breiðþotunum í flota sinn í haust sem verða af gerðinni Airbus A330-200 en með
þeim ætlar félagið að hefja langflug frá Larnaca til Bandaríkjanna, Suður-Afríku og til Kína.
Í dag eru 281 flugfélag í heiminum sem er miðlimur í IATA.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.