flugfréttir

Myndi panta risaþotuna A380 ef hún væri ódýrari

- IAG segir að risaþotan kæmi til greina fyrir nýja flugfélagið Level

7. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:06

Willie Walsh, framkvæmdarstjóri International Airlines Group (IAG)

Willie Walsh, framkvæmdarstjóri International Airlines Group (IAG), móðurfélags British Airways og Iberia, segist vera til í að kaupa fleiri Airbus A380 risaþotur ef þær væru aðeins ódýrari.

Walsh segir að IAG eigi ekki í neinum viðræðum við Airbus um fleiri A380 þotur en tekur frama að hann væri til í að panta fleiri risaþotur sem myndu fara í flota hiðs nýstofnaða flugfélags Level ef Airbus myndi aðeins „lagfæra“ verðmiðann á A380.

„Það verð sem Airbus hefur áður boðið okkur er ekki viðunandi fyrir okkur. Við höfum nefnt það við Airbus að ef þeir vilja selja fleiri A380 risaþotur þá verða þeir að bjóða hana á réttu verði - Ef þeim tekst það þá mega þeir banka á dyrnar hjá okkur við getum talað saman“, segir Walsh.

Walsh hefur tekið fram að hann sé til í að skoða nokkrar tegundir af þotum fyrir umsvif flugfélagsins Level en stefnt er á að floti félagsins verði komin í 30 stórþotur fyrir árið 2022.

Walsh segir að Airbus A330neo og A350 komi einnig til greina og jafnvel Dreamliner-þotan frá Boeing en þá með því skilyrði að Boeing 787 myndi lækka í verði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga