flugfréttir
Let L-410 lenti í helmingi meiri hliðarvindi en vélin þolir
- Bresk flugmálayfirvöld hafa svipt flugfélaginu leyfi til að fljúga til Bretlands
Let L-410 flugvél frá tékkneska flugfélaginu Van Air Europe
Bresk flugmálayfirvöld hafa bannað tékkneska flugfélaginu Van Air Europe að fljúga til Bretlands í kjölfar atviks sem átti sér stað þann 23. febrúar 2017 er farþegaflugvél frá félaginu lenti á eyjunni Mön í hliðvarvindi sem var helmingi sterkari en sá hliðarvindur sem vélin þolir.
Flugvélin, sem var af gerðinni Let L-410, sem er flugvélategund sem framleidd er í Tékklandi, var byrjuð að veltast
á aðra hliðina er hún kom inn til lendingar og var minna en einn metir sem skildi að vinstri vængendann og flugbrautina.
Vélin var komin með heimild til að lenda á braut 26 og tilkynntu flugumferðarstjórar að vindurinn
væri 300 gráður og vindstyrkur 40 hnútar með hviður upp í 63 hnúta sem gefur hliðarvindsstuðul upp á 40 kt.
Hámark hliðarvindsstuðull fyrir Let L-410 flugvélina er hinsvegar 19.4 hnútar og segir í rannsóknarskýrslu
að ekki sé vitað hvort að flugmennirnir hafi þjálfun til þess að lenda í meiri hliðarvindi en það.
Flugvellinum í Mön leyst ekki á blikuna og var neyðarteymi og slökkviliðsbíll ræstur út til að vera
í viðbragðsstöðu auk þess sem talið var að vélin gæti farið út af akbraut ef vindhviðurnar myndu
ná 60 hnútum á þeim tímapunkti sem vélin væri að aka í átt að flugstöðinni.
Þrátt fyrir að lendingin tókst giftusamlega þá hafa bresk flugmálayfirvöld svipt Van Air Europe
leyfi til þess að fljúga til Bretlands og hvatt flugfélagið til þess að hætta strax sölu á farmiðum til landsins.
Vélin var í áætlunarflugi til Belfast á Norður-Írlandi en þurfti að snúa til Mön eftir að vélin hætti við lendingu
á Norður-Írlandi vegna veðurs.
Bresk flugmálayfirvöld hvetja yfirvöld í Tékklandi til að skoða starfshætti félagsins og þjálfun flugmanna í samræmi
við reglugerður um rekstur loftfara í atvinnuskyni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.