flugfréttir

Áratugalöngu banni við flugi til Ísrael yfir Sádí-Arabíu aflétt

8. mars 2018

|

Frétt skrifuð kl. 22:13

Boeing 777 þota El Al Israel Airlines á Ben Gurion flugvellinum í Tel Aviv

Air India hefur fengið leyfi frá yfirvöldum í Sádí-Arabíu til þess að fljúga í gegnum sádírabíska lofthelgi og með því mun flugfélagið indverska geta hafið beint flug til Tel Aviv frá Delhi.

Sádí-Arabíu hefur í marga áratugi bannað flugfélögum að fljúga í gegnum lofthelgina sína ef þau eru á leið til Ísrael vegna pólítískra deilna milli Arabalandanna og Ísrael en vonast er til þess að með þessari leyfisveitingu geti önnur flugfélög flogið einnig yfir Sádí-Arabíu á leið sinni til Ísrael.

Ísraelska flugfélagið El Al Israel Airlines er í dag eina flugfélagið sem flýgur milli Ísrael og Indlands en félagið hefur þurft hingað til að taka á sig krók suður eftir Rauðahafi til að sneiða framhjá Arabíuskaganum og taka því næst beygju til austurs við Sómalíu en félagið flýgur frá Tel Aviv til Mumbai.

Þar af leiðandi hefur flug El Al frá Tel Aviv til Mumbai tekið allt að 8 klukkustundir sem er álíka langt flug og frá Mumbai til London Heathrow.

Air India flaug á árum áður frá Mumbai til Tel Aviv með Airbus A310 þotum en þurfti að hætta því þegar Sádí-Arabía meinaði félaginu að fljúga yfir lofthelgina.

Ekki er þó víst að El Al Israel Airlines muni fá leyfi til að nota sádí-arabíska lofthelgi eins og Air India en það mun þó koma í ljós síðar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga